22.08.26 - 18:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Brentford fór illa með Tottenham

Kayode innsiglaði sigur Brentford

Mynd: EPA

Keane Lewis-Potter

Mynd: EPA

Kayode innsiglaði sigur Brentford

Mynd: EPA
Brentford 3 - 0 Tottenham
1-0 Keane Lewis-Potter ('12 )
2-0 Vitaly Janelt ('33 )
3-0 Michael Kayode ('49 )
3-0 Igor Thiago ('54 , Misnotað víti)
1-0 Keane Lewis-Potter ('12 )
2-0 Vitaly Janelt ('33 )
3-0 Michael Kayode ('49 )
3-0 Igor Thiago ('54 , Misnotað víti)
Brentford fékk Tottenham í heimsókn í síðasta leik dagsins í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Keane Lewis-Potter batt enda á glæsilega sókn Brentford snemma leiks og kom liðinu yfir. Boltinn fór á milli manna en það endaði með því að Mamadou Sangare og Dango Ouattara spiluðu vel saman.
Outtara sendi á Sangare inn í teig og hann sendi fyrir á Lewis-Potter sem skoraði.
Brentford hélt áfram að sækja og Mathias Jansen átti skot sem Antonin Kinsky varði út í teiginn. Vitaly Janelt var fyrstur á boltann og skoraði.
Michael Kayode skoraði síðan þriðja mark Brentford snemma í seinni hálfleik. Hann skoraði af stuttu færi eftir að Kinsky varði boltann út í teiginn.
Igor Thiago fékk síðan tækifæri til að innsigla sigurinn stuttu síðar þegar Brentford fékk vítaspyrnu en hann skaut í stöngina.
Hinn 19 ára gamli Mikey Moore fékk tækifæri í byrjunarliðinu hjá Tottenham og hann var nálægt því að minnka muninn eftir rúmlega hálftíma leik en Caoimhin Kelleher varði vel frá honum.
Nær komust Tottenham menn ekki og öruggur sigur Brentford staðreynd.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 1 | +3 | 3 |
| 2 | Brentford | 1 | +3 | 3 |
| 3 | Everton | 1 | +2 | 3 |
| 4 | Hull City | 1 | +2 | 3 |
| 5 | Ipswich Town | 1 | +1 | 3 |
| 6 | Leeds | 1 | +1 | 3 |
| 7 | Aston Villa | 0 | 0 | 0 |
| 8 | Chelsea | 0 | 0 | 0 |
| 9 | Fulham | 0 | 0 | 0 |
| 10 | Liverpool | 0 | 0 | 0 |
| 11 | Man City | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Newcastle | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Bournemouth | 0 | 0 | 0 |
| 14 | Brighton | 0 | 0 | 0 |
| 15 | Sunderland | 1 | -1 | 0 |
| 16 | Nott. Forest | 1 | -1 | 0 |
| 17 | Man Utd | 1 | -2 | 0 |
| 18 | West Ham | 38 | -19 | 39 |
| 18 | Crystal Palace | 1 | -2 | 0 |
| 19 | Burnley | 38 | -37 | 22 |
| 19 | Tottenham | 1 | -3 | 0 |
| 20 | Wolves | 38 | -41 | 20 |
| 20 | Coventry | 1 | -3 | 0 |