Allt sauð upp úr á Ísafirði – „Leikmaður Vestra hrækti í áttina að okkar leikmanni“

Brynjar Björn þjálfari Leiknis R.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Brynjar Björn þjálfari Leiknis R.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Vestri og Leiknir R. mættust fyrr í dag í 20. umferð Lengjudeildar karla. Leikurinn endaði með 2-0 sigri Vestra í skemmtilegum leik.
Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Brynjar Björn Gunnarsson þjálfara Leiknis. R eftir leikinn.
„Þetta var svekkjandi, byrjunin var vond fyrir okkur en það getur gerst, en fyrir utan það var þetta jafn leikur, tvö jöfn lið og þetta hefði getað endað hvernig sem er. Við fáum vissulega færi og möguleika í þegar við erum 1-0 undir og nýtum það ekki nógu vel. Síðan fáum við frekar lélegt mark í bakið rétt fyrir hálfleik og það er alltaf erfitt að vinna sig aftur inn í leikinn aftur. Við verðum að sætta okkur við það, við vorum á köflum bara betra liðið og þá er mjög svekkjandi að tapa leikjum." Sagði Brynjar eftir leik.
Leiknir R. kom boltanum í netið í fyrri hálfleik en dómari leiksins flautaði brot í aðdragandanum. Brynjar var ósáttur með og dómgæsluna yfir höfuð.
„Bara galið, ótrúleg ákvörðun og þá sérstaklega miðað við það sem undan var gengið gegn okkar mönnum, þá var þetta bara galin ákvörðun. Ég veit ekki hvað ég á að segja, ef maður segir of mikið þá er maður örugglega bara í vandræðum. En það er eins og þessir leikir sem bæði lið eru um miðja deild séu vanmetnir að einhverju leiti. Ekkert við dómarann að sakast sem persónu en þetta var bara ekki nógu gott."
Þegar lokaflautið gall sauð allt upp úr milli leikmanna og þjálfara liðana og allskyns spjöld fóru á loft, sást þú hvað gerðist þar?
„Nei eiginlega ekki, það var leikmaður Vestra sem hrækti í áttina að okkar leikmanni, það er svona lægsta plan sem maður getur komist á að mínu mat og það varð eitthver darraðardans upp úr því."
Leiknir á tvo leiki eftir á tímabilinu og liðið er 5 stigum frá fallsæti, ert þú hræddur við fallpakkan?
„Nei, við vorum nú fyrir þennan leik enn þá að horfa upp töfluna, en mér heyrist að það sé farið. Ég er ekki hræddur og við höfum ekki stillt neinum leikjum þannig upp, við ætlum að ná í eins mörg stig og við getum út tímabilið. Við eigum heimaleik og útileik eftir, það getur skilað okkur sex stigum sem duga okkur."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.
