Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. september 2020 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mikel San Jose til Birmingham (Staðfest)
Mikel í treyju Athletic Bilbao.
Mikel í treyju Athletic Bilbao.
Mynd: Getty Images
Birmingham tilkynnti í gær að félagið hefði fengið Mikel San Jose í sínar raðir frá Athletic Bilbao.

San Jose er 31 árs gamall djúpur miðjumaður og getur einnig leikið sem miðvörður. Hann er uppalinn hjá Bilbao en var á árunum 2007-2010 á mála hjá Liverpool en lék þó aldrei deildarleik með félaginu.

Hann lék á sínum ferli með Athletic 304 leiki og skoraði 27 mörk. Hann á að baki sjö landsleiki fyrir Spán.

Hann verður númer nítján hjá Birmingham í vetur. San Jose kemur á frjálsri sölu til Birmingham.


Athugasemdir
banner
banner