Sveindís Jane Jónsdóttir lék sinn annan landsleik í kvöld og lagði hún upp jöfnunarmark íslenska liðsins fyrir Elínu Mettu Jensen með löngu innkasti. Ísland gerði jafntefli gegn Svíþjóð í undankeppni fyrir EM2021 í kvöld.
Katja sem fylgist vel með kvennafótbolta í Skandinavíu fylgdist með leiknum og var hún mjög hrifin af Sveindísi.
Katja sem fylgist vel með kvennafótbolta í Skandinavíu fylgdist með leiknum og var hún mjög hrifin af Sveindísi.
Sveindís er að láni hjá Breiðabliki í Pepsi Max-deildinni frá Lengjudeildarliði Keflavíkur. Sveindís hefur blómstrað í sumar og verið einn allra besti leikmaður efstu deildar.
„Hversu langt er í að Sveindís fari til sænsks félags? Hún, ásamt nokkrum öðrum, hefur verið frábær í dag," skrifar Katja á Twitter.
Hún bætir svo við fyrra tístið sitt: „Sveindís var virkilega góð í dag og hún er einungis 19 ára. Fáið hana í ykkar raðir," skrifar Katja og vill að sænsk úrvalsdeildarfélög fái Sveindísi í sínar raðir.
I cannot stress how good she has been and she's only 19. Sign her @ Damallsvenskan teams. https://t.co/DH8mNBSgV7
— Katja (@applessquabble) September 22, 2020
Athugasemdir