Króatíski miðjumaðurinn Ivan Rakitic yfirgaf spænska félagið Barcelona á dögunum og gekk aftur til liðs við Sevilla en það var orðrómur þess efnis að hann hafi farið þaðan vegna Luis Suarez og Lionel Messi.
Rakitic spilaði í sex ár með Barcelona og vann þar allt sem hann gat unnið sem leikmaður.
Hann var afar mikilvægur fyrir liðið og spilaði 310 leiki áður en hann fór aftur til Sevilla.
Samkvæmt spænsku blöðunum þá er talið að Rakitic hafi ákveðið að fara frá félaginu þar sem honum kom ekki vel saman með þeim Messi og Suarez.
„Ég hef sagt mína hlið. Samband mitt við Suarez og Messi var ekki náið og það er oft erfitt í 23-24 manna hóp. Bestu vinir mínir þarna voru Andres Iniesta, Marc-Andre ter Stegen, Kevin-Prince Boateng og Junior Firpo," sagði Rakitic.
„Ég ber samt mikla virðingu fyrir Messi og Suarez. Þetta voru liðsfélagar mínir í sex ár og voru mjög mikilvægir leikmenn. Ég ber ómælda virðingu fyir þeim. Þegar samkomubannið stóð yfir þá voru allir saman í þessu og nánast nágrannar. Ég er þakklátur fyrir það hvernig allir komu fram við mig á þessum tíma," sagði hann í lokin.
Athugasemdir