Enski miðjumaðurinn Ravel Morrison hefur samið við ADO Den Haag í Hollandi.
Morrison var á mála hjá Sheffield United á síðustu leiktíð og spilaði einn leik í ensku úrvalsdeildinni. Hann yfirgaf félagið í sumar og hefur verið að leita sér að öðru félagi.
Miðjumaðurinn þótti gríðarlega efnilegur þegar hann var að koma upp hjá Manchester United en fótboltaferill hans hefur ekki alveg gengið upp.
Hann hefur á síðustu árum spilað á Ítalíu, í Mexíkó og í Svíþjóð. Núnar bætir hann við Hollandi á þann lista.
ADO Den Haag er ellefta félagið sem Morrison er á mála hjá á ferlinum.
Athugasemdir