Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 22. september 2020 20:51
Helga Katrín Jónsdóttir
Sara Björk: Vonsvikin að fá ekki 3 stig úr þessum leik
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland tók í kvöld á móti Svíþjóð á Laugardalsvelli í uppgjöri um toppsæti F-riðils fyrir undankeppni EM. Anna Anvegard kom Svíþjóð yfir eftir um hálftíma leik með laglegu skoti og Elín Metta jafnaði fyrir Íslendinga eftir klukkutíma leik  með frábærum skalla og þar við sat. Liðin eru því enn með jafnmörg stig en Svíar halda toppsætinu á betri markatölu.



Sara skoraði mark undir lok fyrri hálfleiks sem Ivana dómari dæmdi af á óskiljanlegan hátt. Hvað fannst Söru um þetta?

"Vonsvikin, það var ekkert brot sem sést, Glódís gerir ekkert af sér. Svo það er gríðarlega svekkjandi að fá ekki þetta mark. Svo er ég bara vonsvikin að fá ekki 3 stig úr þessum leik þar sem við áttum það skilið."

Svíar áttu í erfiðleikum með löngu innköstin hennar Sveindísar, hvernig fannst Söru hún spila í kvöld?

"Mér finnst hún hafa sýnt úr hverju hún er gerð, hún hefur spilað vel í deildinni og þetta frábært próf fyrir hana að spila gegn svona góðu liði og það gerði hún frábærlega með hraða sínum og tækni. Innköstin frá henni voru alltaf hættuleg og markið okkar kemur úr einu slíku. Hún var algjörlega frábær í dag."

Nú eru að byrja að eiga sér stað ákveðin kynslóðaskipti í landsliðinu. Hvernig finnst Söru takturinn vera í liðinu og er breyting á leik liðsins með komu nýrra leikmanna í liðið?

"Mér finnst þessir leikmenn sem hafa komið inn frábærir karakterar, með geggjað attitude, þær vilja spila og eru með geðveikt keppnisskap. Þó þær séu ungar þá eru þær með mikið sjálfstraust. Þetta var öðruvísi leikur en á móti Lettum, munurinn á Lettum og Svíþjóð er náttúrulega gríðarlega mikill. Þannig það var ákveðið test að spila gegn Svíþjóð og þær stóðust það allar. Frábær leikur hjá öllum leikmönnum og þetta er ótrúlega jákvætt fyrir liðið og gefur okkur ógeðslega mikið."






Athugasemdir
banner
banner
banner