Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. október 2021 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland um helgina - Kvennalandsliðið á tvo heimaleiki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið spilar tvo heimaleiki í undankeppni fyrir HM 2023 á næstu dögum. Í kvöld eiga Stelpurnar okkar heimaleik við Tékkland og þurfa sigur eftir tap gegn Hollandi í fyrstu umferð.

Það er mikilvægt að vinna leikinn gegn Tékkum en önnur lið riðilsins eru Kýpur og Hvíta-Rússland.

Ísland á svo heimaleik við Kýpur á Laugardalsvelli næsta þriðjudag en hægt er að búast við stórsigri þar.

Þá spilar U17 landslið karla í undankeppni fyrir EM og á þrjá leiki á næstu dögum. Strákarnir eru í riðli með Eistlandi, Georgíu og Ungverjalandi og stefna á að fara upp úr riðlinum.

Föstudagur:
15:00 Georgía U17 - Ísland U17
18:45 Ísland - Tékkland (Laugardalsvöllur)

Mánudagur:
15:00 Ísland U17 - Eistland U17

Þriðjudagur:
18:45 Ísland-Kýpur (Laugardalsvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner