Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. október 2021 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Úlfarnir lærðu skyndihjálp
Mynd: Getty Images
Leikmenn Úlfanna báðu um að fara á skyndihjálparnámskeið og fengu ósk sína uppfyllta í vikunni.

Leikmenn lærðu helstu tæknir sem þarf að kunna á ögurstundum enda eru til nokkur dæmi um leikmenn sem hníga niður á knattspyrnuvelli og þurfa aðhlynningu strax.

Það er mikilvægt að allir kunni skyndihjálp svo hægt sé að bregðast fljótt við slæmum aðstæðum.

Úlfarnir hafa fengið mikið lof fyrir að kenna leikmönnum skyndihjálp og vonandi ákveða önnur félög að gera slíkt hið sama fyrir sína leikmenn.


Athugasemdir
banner
banner
banner