Fotbolti.net
22.11.23 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

Warnock: Ákváðu að ráða fábjána frekar en mig

Warnock: Ákváðu að ráða fábjána frekar en mig
Canon

Mynd: Getty Images

Gamla kempan Neil Warnock segist þrá að verða stjóri í Skotlandi. Warnock er 74 ára og hefur stýrt sextán enskum félögum. Hann á met stjóra yfir flesta leiki í enska atvinnumannaboltanum.

Warnock segist hafa verið nálægt því að taka við Hearts á sínum tíma.
„Ég elska Skotland. Mig hefur alltaf langað til að stýra skosku liði. Ég taldi mig einu sinni nálægt því að fá starfið hjá Hearts en þeir ákváðu svo að ráða einhvern fábjána frá Lettlandi. Svo þeir vildu mig greinilega ekki,“ segir Warnock.

Hearts hefur reyndar aldrei verið með stjóra frá Lettlandi en talið er að Warnock sé að tala um Valdas Ivanauskas frá Litáen sem var ráðinn undir stjórn fyrrum eiganda, Vladimir Romanov.

Warnock er án starfs eftir að hafa verið rekinn frá Huddersfield um miðjan september en segist búast við að vera kominn í nýtt starf eftir áramót.

„Ég var látinn taka pokann minn á frábærum tíma. Ryder bikarinn í golfi og heimsmeistaramótið í ruðningi (Rugby) voru að byrja og heimsbikarinn í krikket var í gangi," segir Warnock.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.