Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. janúar 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ole: Erum að vinna í leikmannakaupum
Mynd: Getty Images
„Við erum að leita leiða til að styrkja liðið, við erum með okkar skotmörk," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United við BT Sport eftir 0-2 tap gegn Burnley í gær.

„Þetta er okkar annað tap á heimavelli og það fyrsta síðan í ágúst. Ég hélt við værum komnir lengra en þetta."

„Við höfum sagt það hreint út og núna svara ég spurningum þangað til glugginn lokar. Við erum að vinna í þessu."

„Það mikilvægasta í þessu er að spila vel og í kvöld vorum við langt í frá nægilega góðir,"
sagði Solskjær í gærkvöldi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner