Manchester City á leik gegn Cheltenham Town úr ensku D-deildinni klukkan 17:30 í enska bikarnum.
Pep Guardiola mætir með gott lið til leiks eins og sjá má hér að neðan.
Hann gerir samt sem áður tíu breytingar frá sigrinum gegn Aston Villa í miðri viku. Eini leikmaðurinn sem heldur sæti sínu er Íslandsvinurinn Phil Foden.
Ef allt er eðlilegt þá ætti City að vinna auðveldan sigur en það getur allt gerst í enska bikarnum. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.
Byrjunarlið Manchester City: Steffen, Garcia, Harwood-Bellis, Laporte, Mendy, Fernandinho, Doyle, Mahrez, Torres, Foden, Jesus.
(Varamenn: Ederson, Dias, Sterling, Gundogan, Zinchenko, Rodrigo, Bernardo, Cancelo, Bernabe)
Athugasemdir