Það er einn leikur á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en spilað er á Villa Park í Birmingham.
Heimamenn í Aston Villa spila á móti Newcastle í eina leik dagsins í úrvalsdeildinni þar sem um bikarhelgi er að ræða.
Bæði þessi lið hafa verið í basli undanfarið en Newcastle hefur tapað síðustu þremur leikjum sínum og Villa síðustu tveimur.
Villa á enn möguleika á Evrópusæti og getur með sigri komist aðeins fjórum stigum frá liði Tottenham sem er í fimmta sæti.
Athygli vekur að Anwar El-Ghazi er á bekknum hjá heimaliðinu í kvöld.
Hér má sjá byrjunarlið kvöldsins.
Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Mings, Targett, Douglas Luiz, Nakamba, Traore, Barkley, Grealish, Watkins
Newcastle: Darlow, Manquillo, Schar, Lascelles, Lewis, Hayden, Shelvey, Hendrick, Almiron, Carroll, Wilson
Athugasemdir