Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 23. janúar 2021 07:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Chante í Stjörnuna (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Chante Sherese Sandiford er orðin leikmaður Stjörnunnar. Hún mun leysa markvarðarstöðuna hjá félaginu. Hún er 31 árs og hefur leikið með Haukum undanfarin tvö tímabil í Lengjudeildinni og verið fyrirliði liðsins.

Stjörnunni hafnaði í sjötta sæti efstu deildar á síðasta ári. Stjarnan var með 18 stig eftir 16 leiki þegar mótið var blásið af.

Erin McLeod, landsliðsmarkvörður Kanada, varði mark Stjörnunnar seinni hluta síðasta tímabilsins en áður hafði hin efnilega Birta Guðlaugsdóttir varið mark liðsins.

Aftur að Chante en hún kom fyrst hingað til lands 2015 til að spila með Selfossi og var hún hér til 2017. Hún sneri svo aftur hingað til að spila með Haukum og síðustu tvö árin hefur hún verið valin í lið ársins í 1. deildinni. Hún er fædd í Bandaríjkjunum og er með tengingar til Gvæjana.

Hún hefur einnig á ferli sínum leikið með Avaldsnes í Noregi, Zorky Krasnogorsk í Rússlandi ásamt nokkrum félögum í Bandaríkjunum. Þá hefur Chanté spilað 5 leiki fyrir landslið Gvæjana.
Athugasemdir
banner
banner
banner