Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. janúar 2021 08:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hlíf Hauksdóttir aftur í Val (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Hlíf Hauksdóttir er gengin í raðir Vals í fjórða sinn á ferlinum, þá eru frátalin þau skipti sem hún sneri aftur til félagsins úr láni og frá venslafélaginu KH. Í þetta skiptið kemur hún frá KR.

Hlíf er 31 árs miðjumaður sem leikið hefur með KFR, Val, Fylki, ÍBV, Fjölni, KH og nú síðast KR á sínum ferli.

Á síðasta tímabili lék hún níu leiki í Pepsi Max-deild kvenna og skoraði eitt mark.

Hlíf á að baki 151 leik í deild og bikar og í þeim hefur hún skorað 32 mörk.


Í leik með Val árið 2017
Athugasemdir
banner
banner