Fotbolti.net
23.01.21 - 18:50
Victor Pálsson

Kemur ekki til greina að berjast um Odegaard

Kemur ekki til greina að berjast um Odegaard
Canon

Mynd: Getty Images

Imanol Alguacil, stjóri Real Sociedad, hefur útilokað það að Martin Odegaard sé á leið aftur til félagsins frá Real Madrid.
Odegaard stóð sig virkilega vel tímabilið 2019/2020 á láni hjá Sociedad og ákvað Real að nýta sér hans krafta á þessu tímabili.

Þar hefur Norðmaðurinn þó fengið takmarkað að spila og er sterklega orðaður við Arsenal í þessum janúarglugga.

Talað var um að Sociedad gæti barist við Arsenal um miðjumanninn en það verður ekki raunin að sögn Imanol.

„Ég held að það hafi aldrei verið möguleiki. Hann sýndi það hér hversu góður hann er og liðið hefði fundið fyrir hans veru,"/i> sagði Imanol.

„Það hefur þó aldrei komið til greina að fá hann aftur til félagsins."/i>
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.