Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   lau 23. janúar 2021 11:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Körfuboltamaðurinn Luka Doncic sýndi góða fótboltahæfileika
Luka Doncic, körfuboltamaður Dallas Mavericks í NBA-deildinni í Norður-Ameríku, er frábær í sinni íþrótt en virðist líka hafa mikla hæfileika þegar kemur að fótbolta.

Doncic spilaði með Real Madrid á Spáni áður en hann fór í NBA árið 2018. Real Madrid er auðvitað stórveldi í fótboltaheiminum og hefur Doncic talað um það að hann sé mikill stuðningsmaður Real Madrid í fótboltanum.

Doncic æfði fótbolta og var sóknarmaður. Cristiano Ronaldo er í uppáhaldi hjá honum.

„Ég var 16 ára þegar ég hitti hann, ég var svo stressaður að ég gat ekki einu sinni talað," sagði Doncic í viðtali við Bleacher Report í fyrra um Ronaldo.

Slóveninn virðist ekki hafa verið alslæmur í fótboltanum miðað við hvernig hann tók á móti körfuboltanum í gærnótt, í sigri Mavericks á San Antonio Spurs.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af magnaðri móttöku Doncic.


Athugasemdir
banner