mán 23. janúar 2023 22:37
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Svekkjandi úrslit hjá lærisveinum Gattuso
Gattuso á hliðarlínunni í kvöld
Gattuso á hliðarlínunni í kvöld
Mynd: EPA
Valencia 2 - 2 Almeria
0-0 Largie Ramazani ('44 , Misnotað víti)
1-0 Justin Kluivert ('48 )
1-1 Chumi ('54 )
2-1 Jose Gaya ('65 )
2-2 Francisco Portillo ('74 )

Gennaro Ivan Gattuso og lærisveinar hans í Valencia gerðu 2-2 jafntefli við Almería í La Liga á Spáni í kvöld.

Almería fékk kjörið tækifæri til að komast í forystu undir lok fyrri hálfleiksins er Gabriel Paulista handlék knöttinn innan teigs. Largie Ramazani steig á punktinn en skot hans hafnaði í stönginni og sluppu því heimamenn með skrekkinn.

Valencia refsaði Almería strax í upphafi síðari hálfleiks er Justin Kluivert kom liðinu í forystu. Chumi jafnaði fyrir Almerí nokkrum mínútum síðar áður.

Vinstri bakvörðurinn Jose Gaya kom Valencia aftur yfir þegar tæpur hálftími var eftir en aftur svöruðu gestirnir er Francisco Portillo jafnaði þegar stundarfjórðungur var eftir.

Jafntefli niðurstaðan á Mestalla-leikvanginum og Valencia enn í leit að fyrsta sigri ársins. Valencia er í 12. sæti með 20 stig en Almería í 14. sæti með 19 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner