Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 23. febrúar 2020 18:51
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Jafnt á Húsavík - KF sigraði Einherja
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Völsungur tók á móti Dalvík/Reyni í fyrstu umferð B-deildar Lengjubikarsins í dag.

Viktor Daði Sævaldsson gerði eina markið í fyrri hálfleik og leiddu Dalvíkingar því í leikhlé.

Sæþór Olgeirsson jafnaði í upphafi síðari hálfleiks og kom Freyþór Hrafn Harðarson heimamönnum yfir á 69. mínútu.

Tíu mínútum síðar jafnaði Elías Franklin Róbertsson og urðu lokatölur 2-2. Bæði lið með eitt stig eftir fyrstu umferð.

KF lagði þá Einherja að velli í sama riðli. Sævar Gylfason skoraði bæði mörk leiksins.

Fyrst skoraði hann á 32. mínútu og innsiglaði svo sigurinn undir lokin.

Völsungur 2 - 2 Dalvík/Reynir
0-1 Viktor Daði Sævaldsson ('5)
1-1 Sæþór Olgeirsson ('51)
2-1 Freyþór Hrafn Harðarson ('69)
2-2 Elías Franklin Róbertsson ('79)

KF 2 - 0 Einherji
1-0 Sævar Gylfason ('32)
2-0 Sævar Gylfason ('90)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner