Fotbolti.net
23.03.20 - 10:52
Elvar Geir Magnússon

Lineker kominn í sóttkví - Grunur um að sonur hans sé með veiruna

Gary Lineker.

Gary Lineker.

Canon

Mynd: Getty Images

Sjónvarpsmaðurinn Gary Lineker er kominn í sjálfskipaða sóttkví eftir að sonur hans, George, sýndi einkenni sem gætu tengst kórónaveirunni.

Lineker er einn frægasti íþróttasjónvarpsmaður heims en hann stýrir Match of the Day þættinum vinsæla á BBC.

Á Twitter segir Lineker að sonur sinn hafi misst bragð- og lyktarskyn.
Lineker hefur ekki farið leynt með þá skoðun sína að hann vilji að sett verði algjört útgöngubann á Bretlandseyjum vegna faraldursins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.