Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 23. mars 2020 19:53
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho færði öldruðu fólki mat
Jose Mourinho hjálpar öldruðum
Jose Mourinho hjálpar öldruðum
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, sýndi á sér mjúku hliðina í dag á meðan ekkert er spilað á Englandi en hann var í heimsendingaþjónustu á mat fyrir aldraða.

Mikið hefur verið rætt og ritað um kórónaveiruna og afleiðignar hennar en eldra fólkið hefur átt í erfiðleikum með að nálgast mat og hefur oft komið að tómum kofa þegar það hefur haldið út í búð.

Samtökin Age UK bíður upp á heimsendingar á mat fyrir aldraða og ákvað Mourinho að leggja samtökunum lið og var hann í því að skutla fullum pokum af mat á elliheimili og í heimahús.

Myndir voru birtar af Mourinho á Twitter þar sem hann var ágætlega klæddur og virti tveggja metra regluna. Hægt er að sjá myndir af þessu hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner