Aron Birkir Stefánsson átti frábærar markvörslur í naumum sigri Þórs gegn Fram í Bestu deildinni í dag.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 Fram
Hann bjargaði þremur stigum fyrir sína menn með nokkrum góðum vörslum en ein þeirra skaraði sérstaklega framúr og má sjá hér fyrir neðan.
Fred fékk boltann utan vítateigs og átti gott skot sem var á leið í bláhornið, rétt fyrir neðan markvinkilinn.
Aron Birkir náði þó að skutla sér mjög vel til að verja boltann í hornspyrnu.





