Fotbolti.net
23.05.26 - 17:52
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Barco til Chelsea: „Here we go!"

Barco til Chelsea: <i>„Here we go!"</i>
Canon

Mynd: EPA

Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn fræga á félagaskipti Valentín Barco til Chelsea.
Miðjumaðurinn tekníski, sem getur einnig spilað í vinstri bakverði, kemur til Chelsea úr röðum franska systurfélagsins Strasbourg.

Barco er 21 árs gamall og var mikilvægur hlekkur í liði Strasbourg á tímabilinu. Hann er því fyrsti leikmaðurinn sem Chelsea mun festa kaup á eftir ráðningu á Xabi Alonso sem þjálfara.

Barco er með þrjú ár eftir af samningi við Strasbourg en félagið hefur samþykkt að selja hann til Chelsea, en kaupverðið er ekki vitað.

Strasbourg keypti Barco, sem á tvo landsleiki að baki fyrir heimsmeistara Argentínu, úr röðum Brighton fyrir tæpar 10 milljónir evra í fyrrasumar.

Barco er sagður vera búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir sex ára samningi við Chelsea.

Verður fyrstu kaup Alonso til Chelsea
TENGT EFNI

Verður fyrstu kaup Alonso til Chelsea

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Barco til Chelsea: <i>„Here we go!"</i>
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.