Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 23. júní 2020 16:00
Magnús Már Einarsson
Schneiderlin til Nice (Staðfest)
Schneiderlin í baráttunni.
Schneiderlin í baráttunni.
Mynd: Getty Images
Franska félagið Nice hefur keypt miðjumanninn Morgan Schneiderlin frá Everton. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Hinn þrítugi Schneiderlin kveður Everton hefur 88 leiki með liðinu og eitt mark.

Schneiderlin kom til Everton frá Mancheser United í janúar 2017 á 24 milljónir punda.

Á þessu tímabili hefur Schneiderlin spilað 18 leiki en meiðsli hafa sett strik í reikninginn.

Nice endaði í fimmta sæti í frönsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili en þjálfari liðsins er Patrick Vieira, fyrrum miðjumaður Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner
banner