Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 23. júní 2020 19:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Willian og Pedro hjá Chelsea út úrvalsdeildartímabilið (Staðfest)
Hjá Chelsea út leiktíðina.
Hjá Chelsea út leiktíðina.
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur náð samkomulagi við vængmennina Pedro og Willian um að þeir muni klára tímabilið í úrvalsdeildinni hjá félaginu. Skrifað var undir samning um slíkt í dag, ekki er vitað hvort þeir verði í boði þegar Chelsea mætir Bayern Munchen í Meistaradeildinni.

Samningar þeirra áttu að renna út 30. júní og virtist Pedro vera á leið til Roma strax þá og slúðrað hafði verið um að Willian væri mögulega á leið til Manchester United.

Frank Lampard og Marina Granovskaia náðu að snnfæra hinn spænska Pedro og brasilíska Willian um að vera áfram.

Willian var í byrjunarliði Chelsea á sunnudag þegar Chelsea sigraði Aston Villa en Pedro var ónotaður varamaður.
Athugasemdir
banner
banner