Fotbolti.net
23.06.22 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Sveindís Jane: Myndi nú ekki segja að þetta hafi verið mínir skór

Sveindís Jane Jónsdóttir

Sveindís Jane Jónsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Það var Sveindís Jane sem átti þátt í því marki, það voru skórnir hennar sem skoruðu í dag," sagði Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflavíkur, um markið sem Elín Helena Karlsdóttir gerði í 1-0 sigri liðsins á Stjörnunni í síðustu viku en Sveindís segir það kannski ekki alveg rétt.
Elín Helena gerði markið á 47. mínútu og reyndist það sigurmarkið en hún er á láni frá Breiðabliki.

Skórnir sem Elín spilaði í voru vissulega frá Sveindísi en íslenska landsliðskonan notaði þá aldrei enda voru þeir of stórir og ákvað hún því að gefa þá frá sér.

„Ég fékk skó í of stórri skóstærð. Ég vissi að Elín væri í svipaðri skóstærð og ég, þannig ég sendi á hana og leyfði henni að fá þá."

„Ég var ekki einu sinni búin að nota þá, þannig myndi ekki segja að þetta hafi verið mínir skór þannig séð. Þeir eru merktir mér en hún skoraði þetta mark og hrósa henni fyrir það,"
sagði Sveindís um málið.

Sjá einnig:
Sveindís Jane átti þátt í sigurmarki Keflavíkur í gær

Sveindís ánægð með tímabilið en ætlar sér að vinna Meistaradeildina

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.