Fotbolti.net
23.06.23 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

U19 hópurinn fyrir EM kvenna - Bætist í sterka markvarðasveit

Aldís Guðlaugsdóttir, markvörður FH, kemur inn í hópinn.

Aldís Guðlaugsdóttir, markvörður FH, kemur inn í hópinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Búið er að opinbera U19 landsliðshóp kvenna sem tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins í sumar.

Það eru tvær breytingar frá upprunalega hópnum sem var valinn fyrir milliriðilinn. Henríetta Ágústsdóttir, miðjumaður HK, kemst ekki með vegna meiðsla en inn í hennar stað kemur markvörðurinn Aldís Guðlaugsdóttir.
Aldís var hluti af U23 landsliðshópnum þegar milliriðlarnir fóru fram, en hún kemur inn í U19 liðið fyrir lokakeppnina núna. Aldís er búin að vera frábær í sumar en það er ekki annað hægt að segja en að markvarðarsveit liðsins sé mjög sterk því þar eru einnig Fanney Inga Birkisdóttir, markvörður Vals, og Tinna Brá Magnúsdóttir, markvörður Fylkis. Allar eru þær gríðarlega efnilegar og munu veit hvor annari góða samkeppni.

Sigdís Eva Bárðardóttir úr Víkingi kemur einnig inn í hópinn fyrir Söru Dögg Ásþórsdóttur úr Fylki.

Mótið fer fram í Belgíu og eru tveir fjögurra liða riðlar. Stelpurnar okkar drógust í B-riðil ásamt Frakklandi, Tékklandi og Spáni. Lokakeppnin fer fram í Belgíu dagana 18.-30. júlí.

Hópurinn:
Írena Héðinsdóttir Gonzalez Breiðablik
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir Breiðablik
Aldís Guðlaugsdóttir FH
Birna Kristín Björnsdóttir FH (á láni frá Breiðablik)
Elísa Lana Sigurjónsdóttir FH
Tinna Brá Magnúsdóttir Fylkir
Mikaela Nótt Pétursdóttir Keflavík (á láni frá Breiðablik)
Emelía Óskarsdóttir Selfoss (á láni frá Kristianstad)
Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir Selfoss (á láni frá Val)
Eyrún Embla Hjartardóttir Stjarnan
Snædís María Jörundsdóttir Stjarnan
Sædís Rún Heiðarsdóttir Stjarnan
Fanney Inga Birkisdóttir Valur
Hildur Björk Búadóttir Valur
Bergdís Sveinsdóttir Víkingur R.
Sigdís Eva Bárðardóttir Víkingur R.
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir Þór/KA
Jakobína Hjörvarsdóttir Þór/KA
Freyja Katrín Þorvarðardóttir Þróttur R.
Katla Tryggvadóttir Þróttur R.

Sjá einnig:
Margrét Magnúsdóttir - Draumurinn sem við ætluðum að stefna á
Heimavöllurinn: U19 á EM - Metnaður, liðsheild og óbilandi trú
Katla Tryggvadóttir fagnar marki með Þrótti í sumar.

Katla Tryggvadóttir fagnar marki með Þrótti í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.