Ísak Snær Þorvaldsson og Patrik Johannesen eru ekki í leikmannahópi Breiðabliks sem er að spila gegn ÍA. Ef Blikar sigra fara þeir á topp deildarinnar.
Gunnlaugur Jónsson spurði Halldór Árnason þjálfara Breiðabliks út í fjarveru þeirra í útsendingu á Stöð 2 Sport.
Gunnlaugur Jónsson spurði Halldór Árnason þjálfara Breiðabliks út í fjarveru þeirra í útsendingu á Stöð 2 Sport.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 1 ÍA
„Ísak fékk vægt höfuðhögg í síðasta leik. Það er stutt síðan sá leikur var og við tökum enga áhættu með hann. Patrik fékk örlítið í lærið og er frá í dag. En ég reikna með að þetta séu bara nokkrir dagar á þá báða," svaraði Halldór.
Ísak hefur verið afar óheppinn með höfuðhögg á ferli sínum en hann og Patrik ættu að vera mættir aftur í slaginn næsta föstudag, þegar Breiðablik mætir FH.
Leikurinn á Kópavogsvelli er nýhafinn en Sölvi Haraldsson er á vellinum og textalýsir því sem fyrir augu ber.
Athugasemdir