Hvern gæti Man Utd keypt í stað Pogba?


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Pogba, sem er meðal annars orðaður við PSG, verður samningslaus á næsta ári og United þyrfti því að selja hann í sumar til að forðast það að missa hann á frjálsri sölu.
United þarf að finna leikmann í stað Pogba ef hann hverfur á braut. Ole Gunnar Solskjær vill vera með leikmannahóp sem er tilbúinn að berjast um enska meistaratitilinn.

Eduardo Camavinga - Þessi umtalaði átján ára franski landsliðsmaður hefur verið frábær fyrir Rennes.

Mynd: Getty Images

Declan Rice - Þessi 22 ára leikmaður West Ham hefur oft verið orðaður við United.

Mynd: Getty Images

Saul Niguez - Dugnaðarforkur sem lengi hefur verið lykilmaður Atletico Madrid.

Mynd: Getty Images

Pedri - Ungstirnið hefur farið á kostum með Barcelona og spænska landsliðinu. Fjárhagsörðugleikar Börsunga gera að verkum að Mirror telur að hann sé raunhæfur möguleiki

Mynd: Getty Images

Ruben Neves - Portúgalski landsliðsmaðurinn hefur fengið verðskuldað hrós fyrir framgöngu sína með Úlfunum.

Mynd: Getty Images

Leon Goretzka - Fjölhæfur miðjumaður sem á innan við eitt ár eftir af samningi sínum við Bayern München.

Mynd: Getty Images

Youri Tielemans - Átti frábært tímabil með Leicester og hefur tekið miklum framförum.

Mynd: EPA

Miralem Pjanic - Sannaði sig sem einn besti miðjumaður Evrópu hjá Juventus en ekki hefur gengið eins vel hjá honum með Barcelona.

Mynd: Getty Images
