Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 23. júlí 2022 13:25
Ívan Guðjón Baldursson
Brian Brobbey kominn aftur til Ajax (Staðfest)
Brobbey skoraði 16 mörk í 32 leikjum með varaliði Ajax fyrir tveimur árum.
Brobbey skoraði 16 mörk í 32 leikjum með varaliði Ajax fyrir tveimur árum.
Mynd: Getty Images

Ajax hefur staðfest félagsskipti Brian Brobbey aftur til félagsins eftir að hann raðaði inn mörkum fyrir liðið á lánssamningi í vor.


Hinn tvítugi Brobbey er uppalinn hjá Ajax en fór til RB Leipzig á frjálsri sölu í fyrrasumar. Hann fann sig ekki í Þýskalandi og var lánaður aftur til Hollands hálfu ári eftir félagsskiptin.

Brobbey skoraði sjö mörk í ellefu deildarleikjum með Ajax í vor og fær treyju númer 9.  Hann mun leiða sóknarlínu liðsins ásamt Steven Bergwijn sem er einnig nýkominn aftur í hollenska boltann eftir að hafa reynt fyrir sér í stærri deild. 

Ajax borgar rétt rúmlega 15 milljónir evra fyrir Brobbey sem er nokkuð gott afsláttarverð eftir að hafa misst hann frítt frá sér.

Brobbey er kynntur skömmu eftir Calvin Bassey sem kom í fyrradag frá Rangers. Bassey er öflugur varnarmaður sem kostaði rúmlega 20 milljónir evra. Búast má við að Francisco Conceicao bætist einnig við leikmannahópinn á næstu dögum.

Brobbey kemur inn fyrir Sebastien Haller á meðan Bassey á að leysa Lisandro Martinez af hólmi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner