Fotbolti.net
23.07.22 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Burnley fær Muric frá Man City (Staðfest) - Áttundu kaup Kompany

Arijanet Muric

Arijanet Muric

Canon

Mynd: Burnley

Enska B-deildarfélagið Burnley hefur fest kaup á Arijanet Muric frá Englandsmeisturum Manchester City en þetta eru áttundu kaup félagsins í sumar.
Burnley missti marga lykilmenn eftir að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en Vincent Kompany, fyrrum leikmaður Man City, tók við sem stjóri liðsins og hefur hann verið duglegur að styrkja hópinn síðan.

Hann hefur nú fest kaup á Muric frá sínu gamla félagi Manchester City en kaupverðið er ekki gefið upp.

Muric skrifaði undir fjögurra ára samning í gær og er áttundi leikmaðurinn sem Burnley fær í glugganum.

Þessi landsliðsmarkvörður Kósóvó spilaði fimm leiki fyrir aðallið Man City og á þá 28 landsleiki fyrir Kósóvó.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.