Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 23. júlí 2022 17:05
Ívan Guðjón Baldursson
Dani Alves kominn til Pumas (Staðfest)
Mynd: EPA

Mexíkóska stórveldið Pumas er búið að staðfesta komu brasilíska bakvarðarins Dani Alves á frjálsri sölu.


Hinn 39 ára gamli Alves kom á óvart og stóð sig vel með Barcelona á síðustu leiktíð eftir að hafa verið lykilmaður hjá Sao Paulo í Brasilíu undanfarin tvö ár.

Alves fékk þó ekki nýjan samning hjá Börsungum og mun nú reyna fyrir sér í nýrri heimsálfu, þeirri þriðju á ferlinum.

Þessi goðsögn á 124 landsleiki að baki fyrir Brasilíu og er enn að. Hann hefur spilað fimm landsleiki á þessu ári og stefnir á HM í Katar. Hann missti af síðasta heimsmeistaramóti vegna meiðsla.


Athugasemdir
banner
banner