Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 23. júlí 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Porto sækir óslípaðan demant frá Brasilíu (Staðfest)
Gabriel Veron
Gabriel Veron
Mynd: EPA
Portúgalska félagið Porto hefur fest kaup á brasilíska vængmanninum Gabriel Veron frá Palmeiras en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.

Veron er 19 ára gamall og hefur komið að 28 mörkum í 95 leikjum með Palmeiras.

Hann þykir með efnilegri leikmönnum Brasilíu og fær nú tækifæri til að bæta leik sinn hjá Porto, en hann gerir fimm ára samning við félagið.

Félagið er með þeim fremstu í Evrópu þegar það kemur að því að finna óslípaða demanta í Suður-Ameríku og selja þá með miklum hagnaði í stærstu félög heims.

Það verður fróðlegt að sjá hvað verður úr Veron, sem á 20 leiki og 6 mörk fyrir yngri landslið Brasilíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner