Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 23. júlí 2022 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Tindastóll sækir ástralskan varnarmann (Staðfest)
Mynd: Heimasíða Tindastóls
Tindastóll hefur fengið til sín ástralska varnarmanninn Claudiu Valletta og mun hún spila með liðinu í Lengjudeildinni út þessa leiktíð.

Claudia er fædd árið 2003 og lék síðast með Bergamo Sharks í C-deildinni á Ítalíu. Hún er einnig með vegabréf frá Möltu og er með mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur.

Þar áður lék hún fyrir Manly United og Football NSW Institute í næst efstu deild í Ástralíu. Þar að auki á hún leiki með yngri landsliðum Ástralíu.

„Claudia er góð á boltann en er á sama tíma grjóthörð og ósérhlífin leikmaður. Hún er jafnfætt og
getur leyst flest allar stöður i vörninni,"
sagði Donni um Claudiu.

„Það er mikið fagnaðarefni að fá Claudiu til okkar. Hún er ungur fjölhæfur leikmaður sem er með landsliðsreynslu frá yngri landsliðum Ástralíu. Henni er ætlað að koma með enn meiri breidd inn í okkar hóp og setja pressu á þá leikmenn sem fyrir eru. Ég veit að okkar góða samfélag tekur vel ámóti Claudiu sem á án efa eftir setja skemmtilegan lit á okkar lið," sagði hann ennfremur.

Tindastóll er í 3. sæti Lengjudeildarinnar með 24 stig eftir þrettán leiki.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner