Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 23. ágúst 2019 18:09
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Villa og Everton: Gylfi á sínum stað í holunni
Mynd: Getty Images
Aston Villa tekur á móti Everton í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Gylfi Þór Sigurðsson er á sínum stað í byrjunarliði Everton fyrir aftan Dominic Calvert-Lewin sem byrjar fremstur. Moise Kean og Alex Iwobi eru á bekknum.

Lucas Digne er í byrjunarliðinu en óttast var að hann yrði ekki með vegna smávægilegra meiðsla. Eina breytingin sem Marco Silva gerir er að Morgan Schneiderlin kemur inn fyrir Jean-Philippe Gbamin.

Dean Smith gerir tvær breytingar á byrjunarliði Aston Villa sem tapaði 1-2 fyrir Bournemouth um síðustu helgi.

Frederic Guilbert spilar sinn fyrsta keppnisleik fyrir Villa og kemur inn í byrjunarliðið í stað Ahmed Elmohamady. Jota byrjar þá í sóknarlínunni í stað Anwar El-Ghazi.

Aston Villa: Heaton, Engels, Mings, Guilbert, Taylor, McGinn, Douglas Luiz, Grealish, Trezeguet, Wesley, Jota.
Varamenn: Steer, Konsa, Elmohamady, El Ghazi, Hourihane, Lansbury, Davis.

Everton: Pickford, Coleman, Mina, Keane, Digne, Schneiderlin, Gomes, Richarlison, Sigurðsson, Bernard, Calvert-Lewin.
Varamenn: Stekelenburg, Holgate, Sidibe, Davies, Walcott, Iwobi, Kean.
Athugasemdir
banner
banner