Fotbolti.net
23.08.26 - 14:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steypustöðin

Sterkasta lið 16. umferðar - Toppliðin töpuðu bæði

Víkingur tók sigur í Kaplakrika.

Víkingur tók sigur í Kaplakrika.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það voru gríðarlega óvænt úrslit í 16. umferð Bestu deildar kvenna. Það var ekki nóg með það að botnlið Víkings fór í Kaplakrika og vann þar 0-1 sigur á FH, þá vann Stjarnan líka sigur gegn toppliði Breiðabliks í Miðgarði.

Bæði þessi lið, Stjarnan og Víkingur, eiga þrjá fulltrúa í sterkasta liði umferðarinnar.
Sterkasta lið 15. umferðar - Nöfnurnar fóru fyrir sínu liði
TENGT EFNI

Sterkasta lið 15. umferðar - Nöfnurnar fóru fyrir sínu liði



Telma Ívarsdóttir var maður leiksins í sigri Víkinga en Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir og Arna Ísold Stefánsdóttir spiluðu einnig vel.

Snædís María Jörundsdóttir og Vigdís Edda Friðriksdóttir breyttu leiknum fyrir Stjörnunni gegn Breiðabliki. Óskar Smári Haraldsson er þjálfari umferðarinnar.

Þá vann Valur sterkan útisigur fyrir norðan þar sem Lillý Rut Hlynsdóttir skoraði sigurmarkið gegn sínum gömlu félögum. Ísabella Sara Tryggvadóttir spilaði líka vel.

Ása Björg Einarsdóttir átti sannkallaðan stórleik gegn Fram þar sem hún skoraði tvö og lagði upp eitt. Sophia Faith Romine var valin næstbest á vellinum.

Þá voru Katie Cousins og Jelena Tinna Kujundzic bestar í sterkum sigri Þróttar í Vestmannaeyjum.
Snædís átti öfluga innkomu fyrir Stjörnuna.

Snædís átti öfluga innkomu fyrir Stjörnuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lillý skoraði sigurmarkið á gamla heimavellinum.

Lillý skoraði sigurmarkið á gamla heimavellinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ása Björg átti stórleik.

Ása Björg átti stórleik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Katie Cousins hefur breytt liði Þróttar.

Katie Cousins hefur breytt liði Þróttar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik16+2636
2FH16+2333
3Stjarnan16+626
4ÍBV16-324
5Grindavík/Njarðvík16-222
6Þróttur R.16-321
7Þór/KA16-318
8Valur16-1216
9Fram16-1716
10Víkingur R.16-1514
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.