Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. september 2021 12:35
Elvar Geir Magnússon
U15 fékk skell í seinni leiknum gegn Finnum
Icelandair
U15 tapaði 2-6 í Finnlandi í dag.
U15 tapaði 2-6 í Finnlandi í dag.
Mynd: KSÍ
Lúðvík Gunnarsson er þjálfari U15.
Lúðvík Gunnarsson er þjálfari U15.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U15 karla tapaði 2-6 fyrir Finnlandi í síðari vináttuleik þjóðanna, en leikið var ytra.

Theodór Ingi Óskarsson, leikmaður Fylkis, kom Íslandi yfir strax á 5. mínútu leiksins en hann hirti frákastið eftir að íslensku liðið hafði brennt af vítaspyrnu.

Finnar skoruðu tvö mörk á tveimur mínútum um miðjan fyrri hálfleik og tóku forystuna. Þeir bættu svo þriðja markinu við á 38. mínútu og staðan því 3-1 í hálfleik.

Finnar skoruðu næstu tvö mörk leiksins, en Stígur Diljan Þórðarson, leikmaður Víkings, minnkaði muninn í 2-5 á 90. mínútu. Finnar bættu svo við einu marki í uppbótartíma og 2-6 tap Íslands því staðreynd.

Fyrri leikur þjóðanna endaði með 4-3 sigri Finnlands.

Byrjunarliðið
Guðmundur Reynir Friðriksson (M)
Sveinn Svavar Hallgrímsson
Dagur Jósefsson (F)
Þorri Stefán Þorbjörnsson
Nóel Atli Arnórsson
Breki Baldursson
Allan Purisevic
Theodór Ingi Óskarsson
Kristján Sindri Kristjánsson
Hrafn Guðmundsson
Elmar Freyr Hauksson
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner