banner
   fös 23. september 2022 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dembele: Hef sóað fimm árum af mínum ferli
Mynd: EPA
Ousmane Demebele, leikmaður Barcelona, vill bæta upp fyrir tapaðan tíma og segist hafaa sóað fimm árum af sínum atvinnumannaferli. Dembele gekk í raðir Barcelona frá Dortmund árið 2017 og greiddi Barcelona 135 milljónir punda fyrir franska landsliðsmanninn.

Þessi fimm ár hjá Barcelona hafa ekki verið frábær, Dembele hefur mikið glímt við meiðsli, alls misst út 102 leiki vegna meiðsla.

„Lífstíllinn fyrstu árin mín hjá Barcelona? Ég var ungur eins og allir aðrir," sagði Dembele við RMC Sport.

„En ég náði að komast út úr því. Hlutirnir eru samt ekki alltaf eins og fólk ímyndar sér. Frá 2017-2021 þá hef ég sóað tíma mínum gífurlega. Ég hef sóað fimm árum af mínu lífi."

„Ég þurfti að leggja á mig til að vera klár í að spila og standa mig. Ég vildi vera heill, að vera heill er að geta spilað og svo getur maður bætt frammistöðurnar smám saman,"
sagði Dembele sem krossleggur fingur að meiðast ekki aftur.
Athugasemdir
banner
banner
banner