KFG og Víðir mætast í úrslitum Fótbolta.net bikarsins á Laugardalsvelli næsta föstudagskvöld, þann 29. september.
KFG lagði KFA fyrir austan en Jón Arnar Barðdal skoraði eina markið eftir þriggja mínútna leik. Danny El-Hage markvörður KFA hafði farið í skógarferð og Jón Arnar refsaði.
Víðir lenti undir gegn KFK en Atli Dagur Ásmundsson kom KFK yfir úr vítaspyrnu eftir hálftíma leik.
Aron Freyr Róbertsson jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks. Hann var ekki hættur og tryggði Víði farseðilinn í úrslitaleikinn með marki þegar um stundafjórðungur var til leiksloka.
KFA 0 - 1 KFG
0-1 Jón Arnar Barðdal ('3 )
Lestu um leikinn
Víðir 2 - 1 KFK
0-1 Atli Dagur Ásmundsson ('32 , víti)
1-1 Aron Freyr Róbertsson ('41 )
2-1 Aron Freyr Róbertsson ('76 )
Lestu um leikinn