Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 23. nóvember 2021 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Berbatov væri til í að fá Pochettino eða Blanc til United
Dimitar Berbatov
Dimitar Berbatov
Mynd: Getty Images
Dimitar Berbatov, fyrrum framherji Manchester United, telur að Michael Carrick eigi að stýra liðinu út þessa leiktíð en hann hefur einnig nefnt tvo aðra stjóra sem gætu tekið við liðinu.

United er í leit að bráðabirgðastjóra út tímabilið áður en það finnur nýjan stjóra næsta sumar.

Ole Gunnar Solskjær var látinn fara frá félaginu á sunnudag eftir þrjú ár í starfi og er nú Mauricio Pochettino talinn líklegastur til að taka við til bráðabirgða.

Michael Carrick stýrir liðinu á meðan félagið leitar að nýjum stjóra en Berbatov er með sterkar skoðanir á stjóramálunum.

„Ef United ætlar að ráða bráðabirgðastjóra út tímabilið þá er Michael Carrick rétti maðurinn. Hann hefur verið hjá félaginu í langan tíma, fyrst sem leikmaður og sem þjálfari undir stjórn Jose Mourinho og Solskjær," sagði Berbatov.

„United hefur lengi verið hrifið af Pochettino en hann er að þjálfa PSG og það er erfitt að sjá hann koma. Eina lausnin væri ef Zinedine Zidane myndi taka við PSG. Ef hann er klár í það þá gæti ég séð Pochettino koma til United."

„Laurent Blanc er áhugaverður kostur. Fyrrum leikmaður United sem hefur unnið allt og þjálfað bæði PSG og franska landsliðið og fær virðingu frá leikmönnum,"
sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner