þri 23. nóvember 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Milan vill fá Renato Sanches í stað Kessie
Renato Sanches
Renato Sanches
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið AC Milan ætlar að fá portúgalska miðjumanninn Renato Sanches til að leysa af Franck Kessie næsta sumar La Gazzetta dello Sport greinir frá því.

Sanches var einn besti maður frönsku deildarinnar á síðustu leiktíð er liðið vann fyrsta titilinn í tíu ár.

Hann var í viðræðum við nokkur félög í sumar en það varð ekkert af skiptunum eftir að hann meiddist illa.

„Milan og Arsenal hafa kannski áhuga en ég er ekki alveg viss. Milan er stórt og sögufrægt félag. Það er klassi þar og mér líst vel á það félag," sagði Renato í samtali við L'Equipe í gær.

Milan ætlar sér að fá Sanches frá Lille næsta sumar og kemur hann til með að leysa Franck Kessie af hólmi. Kessie verður samningslaus næsta sumar og ætlar sér ekki að framlengja samning sinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner