Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. nóvember 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu stórfenglegt mark Casadei með unglingaliði Chelsea
Mynd: Getty Images

Cesare Casadei skoraði annað markið í flottum sigri unglingaliðs Chelsea gegn Peterborough í EFL Trophy bikarkeppninni sem er haldin fyrir neðri deildir enska boltans.


Casadei er ungstirni frá Ítalíu sem Chelsea keypti frá Inter í sumar fyrir um 16 milljónir punda.

Todd Boehly, nýr eigandi Chelsea, ætlar að leggja mikla áherslu á að kaupa unga og efnilega leikmenn til félagsins og byggja þannig upp ógnarsterkt framtíðarlið.

Hér fyrir neðan má sjá markið sem Casadei skoraði af afar löngu færi í sigrinum gegn Peterborough. Sannarlega stórfenglegt mark.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner