Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 23. desember 2020 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sólveig Larsen í Val (Staðfest)
Mynd: Valur
Valur hefur samið við Sólveigu Jóhannesdóttur Larsen til næstu tveggja ára.

Hún kemur til félagsins frá Breiðablik en var í láni hjá Fylki síðasta sumar.

Sólveig, sem er tvítug, hefur leikið 44 leiki í efstu deild og skorað í þeim tvö mörk og þá á hún 32 leiki með yngri landsliðum Íslands.

„Við bjóðum Sólveigu velkomna á Hlíðarenda!" segir í tilkynningu frá Val sem hafnaði í öðru sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðustu leiktíð.

Komnar:
Anna Rakel Pétursdóttir frá Uppsala
Mary Alice Vignola frá Þrótti R.
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen frá Fylki

Farnar
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir í Kansas City FC (Var á láni)
Athugasemdir
banner
banner