Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. desember 2020 15:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Van Aanholt hristir höfuðið út af fréttum um Rúnar Alex
Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður Arsenal.
Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður Arsenal.
Mynd: Getty Images
Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður Arsenal, er búinn að loka Twitter-reikingi sínum.

Rúnar Alex átti ekki góðan leik í 4-1 tapi gegn Manchester City í deildabikarnum í gær.

Rúnar Alex greip í tómt í fyrsta markinu sem Gabriel Jesus skoraði og gerði hann afar slæm mistök þegar Riyad Mahrez kom Man City í 2-1. Mahrez tók aukaspyrnu sem fór beint á Rúnar, en landsliðsmarkvörðurinn missti boltann inn.

Hann hefur orðið fyrir nokkru skítkasti á samfélagsmiðlum og enskir fjölmiðlar fjölluðu um það í dag að Rúnar væri búinn að loka Twitter-reikingi sínum.

Patrick van Aanholt, leikmaður Crystal Palace, tjáir sig um málið á samfélagsmiðlinum.

„Ef það er satt að Rúnar Alex lokaði Twitter-reikingi sínum út af skítkasti frá stuðningsmönnum... þá hristi ég höfuðið," skrifaði Hollendingurinn en tíst hans má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner