Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 24. janúar 2021 14:30
Ívan Guðjón Baldursson
Diogo Coelho kominn til Vestra (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Diogo Coelho mun leika fyrir Vestra í sumar eftir að hafa náð samkomulagi við félagið um eins árs samning.

Diogo er 28 ára gamall Portúgali og á 27 leiki að baki fyrir ÍBV hér á landi. Hann lék með Eyjamönnum 2018 og 2019 í efstu deild karla.

Diogo er vinstri bakvörður sem hefur leikið í armenska boltanum undanfarið ár eftir að hafa verið á Íslandi.

„Við bjóðum Diogo velkominn til Vestra! Bem-vindo Diogo!" segir á vefsíðu Vestra.

Vestri endaði um miðja Lengjudeild í haust með 29 stig úr 20 leikjum.
Athugasemdir
banner