Í dag var tilkynntur nýr markvörður hjá Þrótti. Mollee Swift kemur til félagsins í febrúar frá Bandaríkjunum og gaf félagið út að hún myndi verja mark liðsins.
Íris Dögg Gunnarsdóttir hefur varið mark Þróttar undanfarin þrjú ár og var valin í A-landsliðið nokkrum sinnum á síðustu tveimur árum. Hún fékk fyrst kallið á EM þegar hún var kölluð inn í hópinn vegna meiðsla í markvarðahópnum.

Fótbolti.net hafði samband við Írisi í dag og hún staðfesti að hún yrði ekki áfram hjá Þrótti.
Aðspurð hvort hún ætlaði sér að halda áfram í fótbolta sagði Íris: „Heldur betur.".
Íris er 34 ára og á hún að baki 145 leiki í efstu deild. Hún hefur á meistaraflokksferlinum spilað með Fylki, KR, FH, Haukum, Gróttu, Aftureldingu, Breiðabliki og Þrótti.
Athugasemdir