Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. mars 2020 14:18
Hafliði Breiðfjörð
FH-ingar halda sér í formi með heimaæfingum
Mynd: Aðsend
Leikmenn meistaraflokks kvenna hjá FH hafa þurft að æfa heima eftir að samkomubann var sett á.

Óvíst er hvenær keppni hefst í Pepsi Max deildinni vegna kórónuveirunnar en leikmenn FH liðsins hafa haldið sér í formi með heimaæfingum.

Hjörtur Hinriksson, styrktarþjálfari meistaraflokks kvenna, hefur séð um að búa til æfingaprógrömm fyrir leikmenn sem þær vinna heima hjá sér.

„Síðasta sumar fengum við GPS poda til að „tracka" leikmenn á öllum æfingum og það er engin undantekning á því þrátt fyrir að þær æfi heima. Það er mikilvægt að leikmenn haldi sér í formi þrátt fyrir að staðan sé þessi. Við þökkum þeim aðilum sem hjálpuðu til við að græja podana síðasta sumar. Podarnir hafa reynst okkur vel og munu gera það áfram,” segir Árni Freyr Guðnason, aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá FH.

Myndir frá æfingum leikmanna má sjá í fréttinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner