Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 24. mars 2020 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Sissoko: Ég held að Mane fari til Real Madrid
Fer Sadio Mane til Real Madrid?
Fer Sadio Mane til Real Madrid?
Mynd: Getty Images
Mohamed Sissoko, fyrrum leikmaður Liverpool, telur að Sadio Mane komi til með að fara til Real Madrid í framtíðinni.

Sissoko spilaði með Liverpool frá 2005 til 2008 en auk þess lék hann með liðum á borð við Juventus, Valencia og Paris Saint-Germain.

Þessi fyrrum landsliðsmaður Senegal var spurður út í stöðu Sadio Mane en hann telur að leikmaðurinn komi til með að fara til Real Madrid.

Mane hefur skorað 14 mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og þá hefur hann lagt upp önnur sjö en hann er alger lykilmaður í liðinu.

„Ég sé fyrir mér að Mane fari til Real Madrid frekar en Mohamed Salah. Mane hefur þennan karakter sem Zidane vill og þess vegna held ég að Mane fari þangað. Ég veit ekki ef Salah verður áfram hjá Liverpool en ef hann fer þá væri það gott fyrir liðið. Þeir hjá Liverpool eru klárir þegar það kemur að kaupum og þeir myndu vita hvernig ætti að leysa hann af hólmi," sagði Sissoko.
Athugasemdir
banner
banner
banner