Heimild: KSÍ
Framkvæmdir eru hafnar þar sem nýtt fjölnota íþróttahús mun standa á Borgarnesi.
Íþróttahúsið á að vera fullklárað og tilbúið til notkunar haustið 2026.
Það verður byggt á íþróttasvæðinu í Borgarnesi þar sem sundlaug og íþróttahús eru fyrir.
Eysteinn Pétur Lárusson framkvæmdastjóri KSÍ var viðstaddur þegar táknræna fyrsta skóflustungan var tekin á byggingarsvæðinu.
Eysteinn gaf Borgfirðingum fótbolta í tilefni dagsins enda verður fótbolti í aðalhlutverki í nýja íþróttahúsinu.
Athugasemdir