24.05.20 - 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Klaus fékk beint rautt fyrir brot á Akanji


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Dortmund lagði í gær Wolfsburg að velli með 0-2 sigri á útivelli. Raphael Guerreiro og Achraf Hakimi skoruðu mörkin sem héldu pressu á topplið Bayern.
Á 81. mínútu fór dómari leiksins, Daniel Siebert, í varsjána þar sem Manuel Akanji, varnarmaður Dortmund lá eftir.
Á 81. mínútu fór dómari leiksins, Daniel Siebert, í varsjána þar sem Manuel Akanji, varnarmaður Dortmund lá eftir.
Boltinn var á leið til Felix Klaus en Akanji var fyrri til og náði til knattarins í baráttunni. Klaus steig á ökklann á Akanji og sá Siebert það í varsjánni. Óvart eða ekki þá ákvað Siebert að þetta verðskuldaði rautt spjald.
Brotið má sjá hér að neðan. Akanji gat haldið leik áfram og kláraði leikinn.
Brotið má sjá hér að neðan. Akanji gat haldið leik áfram og kláraði leikinn.
